Alþýðublaðið - 16.06.1987, Blaðsíða 4
MMMBIlBni
Þriðjudagur 16. júní 1987
Kurt Waldheim
HEIÐRAÐUR AF
FASISTASAMTOKUM
Forseti Austurríkis, Kurt Waldheim, fékk heiðursmerki af hæstu
gráðu fyrir frammistöðu sína í heimsstyrjöldinni síðari.
Upplýsingar um þetta liggja fyrir
í austurríska utanríkisráðuneytinu
og komu nýlega fram í þættinum
„Hér og nú“ á rás 2 i norska sjón-
varpinu. Þar var einnig haft eftir
sömu heimildum að Waldheim hafi
gerst félagi í stormsveitum nasista
fyrir stríð, en því hefur hann stað-
fastlega neitað.
Utanríkisráðuneytið austurríska
hefur haft þessar upplýsingar undir
höndum síðan í stríðslok, en þær
stangast algerlega á við það sem
Waldheim hefur sagt um störf sín á’
meðan á stríðinu stóð. Síðastliðið
ár hefur Waldheim hvað eftir annað
verið sakaður um að Ijúga til um
fortíð sína og það hlutverk sem
hann gegndi í þýska hernum í stríð-
inu.
En Waldheim viðurkennir ekki
að hann hafi neinu logið. Við um-
sjónarmenn þáttarins „Hér og nú“
hefur hann áður sagt: „Hvernig er
hægt að búast við að maður geti
munað 40 ára atburði í smáatrið-
um. Þegar þessar ásakanir byrjuðu,
skildi ég að það var nauðsynlegt að
grafa í fortíð mína og það tekur
tíma að fara í gegnum öll smá-
atriði“
Upplýsingar frá utanríkisráðu-
neytinu sýna ennfremur að Wald-
heim var i þjónustu hersins eftir
1941. Meðal annars gegndi hann
störfum í Júgóslavíu, sem nú er, ár-
ið 1942. Það var fyrir störf sín þar
sem hann fékk heiðursmerkið frá
fasistasamtökunum Ustasja.
Nú hefur Kurt Waldheim, forseti
Austurríkis verið tilnefndur til frið-
arverðlauna Nóbels, skv. frétt í
norskum dagblöðum í síðustu viku.
Þar segir að tilnefningin sé komin
frá prófessor Hans Kochler við há-
skólann í Innsbruck, sem einnig
hefur starfað í nefndum á vegum
Sameinuðu Þjóðanna. Kochler er
prófessor í stjórnmálaheimspeki.
Kurt Waldheim er fyrrum aðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna, núver-
andi forseti Austurríkis og liggur
undir grun um að hafa framið
stríðsglæpi í heimsstyrjöldinni síð-
ari.
Jakob Sverdrup við Nóbels-
stofnunina í Ósló vill hvorki játa því
né neita að Waldheim hafi verið til-
nefndur til friðarverðlaunanna. Að
minnsta kosti verður hann ekki
meðal útvaldra í ár, þar eð frestur-
inn er útrunninn í ár fyrir þá sem
valið verður um til að hljóta friðar-
verðlaun Nóbels.
Ég hef hreinan skjöld, segir Waldheim. En sannanir hlaðast upp gegn
manninum sem nú hefur meira að segja verið tilnefndur til friðarverðlauna
Nóbels. Þó ekki fyrir störfin sem hann gegndi I heimsstyrjöldinni síðari.
Nýtt símanúmer hefur tekið gildi
fyrír allar deildir Iðnaðarbankans í Lækjargötu 12.
• Almenn afgreiðsla
• Erlend viðskipti
• Lánasvið
• Rekstrarsvið
• Markaðssvið
• Lögfræðisvið
• Verðbréf og innheimtur
• Endurskoðun
• Fjármálasvið
• Bankastjórn
• Iðnlánasjóður
Lækjargötu 12. Sími 6918 00.