Unix

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 8. mars 2013 kl. 15:32 eftir Addbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. mars 2013 kl. 15:32 eftir Addbot (spjall | framlög) (Bot: Flyt 92 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q11368)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Unix eða UNIX er hópur stýrikerfa fyrir tölvur, það fyrsta skrifað á sjöunda og áttunda áratug tuttugustu aldarinnar á Bell ransóknarstofum bandaríska símarisans AT&T. Seinna komu svo fram fleiri útgáfur, bæði frá ýmsum fyrirtækjum sem og áhugamönnum undir flaggi GNU hreyfingarinnar.

Unix kerfi eru hönnuð sem fjölnotenda- og fjölforrita-umhverfi sem auðvelt er að breyta fyrir mismunandi vélbúnað. Einkenni þeirra eru einkum einfaldar textaskrár notaðar alls staðar sem hægt er, skipanalína, skráakerfi með möppuhugtak og framsetning vélbúnaðar og forritasamskipta sem textaskráa.

GNU/Linux er hópur frjálsra stýrikerfa, sem eru náskyld Unix.